Snjómokstur veturinn 2026–27
Snjórinn kemur.
Við mætum.
Snjómokstur og hálkuvörn fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki í Reykjanesbæ. Fáðu tilboð í þinn stað áður en fyrsti snjórinn fellur.

Áður en frystir
Litlu verkin sem er best að klára núna.
Það er auðveldara að laga þetta núna en þegar jörðin er frosin.
Klára innkeyrsluna
Möl eða hellur í innkeyrsluna áður en frystir. Við komum með efnið og jöfnum það út.
EfnisflutningarGera lóðina klára fyrir veturinn
Stéttir, hellur og kantar sem þurfa lagfæringu, kláruð áður en frostið kemst í jörðina.
LóðafrágangurFella tré og hreinsa til
Tré og greinar sem gætu brotnað í vetrarveðrum, felld og fjarlægð í tæka tíð.
Verktakaþjónusta
Þjónusta
Allt sem lóðin þarf, frá fyrstu skóflu.
Jarðvinna fyrir byggingar
Uppgröftur, jarðvegsskipti, fylling og þjöppun svo smiðirnir geti byrjað.
Gröftur fyrir lagnir
Lagnaskurðir og frágangur. Pípulagningameistarinn sér um lagnirnar sjálfar.
Lóðafrágangur
Hellulagnir, stígar, tyrfing og það sem klárar lóðina.
Akstur og efnisflutningar
Fylling, möl og grjót á staðinn. Jarðvegur og uppgröftur burt.
Verktakaþjónusta
Trjáfellingar, reisningar, glerjun, grabbavinna og smærri sérverk.
Snjómokstur og hálkuvörn
Heimili, húsfélög og fyrirtæki í Reykjanesbæ, dag og nótt þegar þarf.
Hvers vegna Grunnar
Eitt símtal. Eitt fyrirtæki. Verkið klárað.
Eitt fyrirtæki, allt verkið
Þú þarft ekki að samhæfa þrjá verktaka.
Eigin tæki og mannskapur
Engar tafir vegna leigutækja eða undirverktaka.
Á svæðinu þínu
Við erum í Reykjanesbæ og þekkjum jarðveginn.
Skýr verðtilboð
Verðmat sem stendur, engar óvæntar uppbætur.
Svæðið
Heimavöllurinn okkar er Reykjanesbær.
Keflavík, Njarðvík, Ásbrú og flugvallarsvæðið, og víðar á Suðurnesjum í jarðvinnu og akstri.
Spurt og svarað
Algengar spurningar
Hvernig virkar snjómoksturinn?
Þú biður um tilboð í staðinn og við sendum þér verð. Ef þú samþykkir fer staðurinn á listann og við mætum þegar snjóar. Þú greiðir fyrir hvert skipti og færð einn reikning í mánuði.
Hvernig fæ ég verðtilboð?
Hringdu í 779 0300 eða sendu fyrirspurn með lýsingu á verkinu. Við skoðum aðstæður og sendum þér tilboð. Engin skuldbinding.
Getið þið útvegað möl og fyllingu?
Já. Við sækjum efni í námurnar í Stapafelli og Rauðamel og keyrum á staðinn. Þú getur keypt efnið sjálf/ur eða látið okkur sjá um það og fengið einn reikning.
Getið þið séð um lagnaverkið í heild?
Já. Við gröfum fyrir lögnunum og göngum frá eftir á, og vinnum náið með pípulagningameisturum sem leggja lagnirnar. Þú hringir eitt símtal og við samæfum verkið. Ertu nú þegar með meistara? Við vinnum líka með honum.
Ertu með verk á döfinni?
Lýstu verkinu og við sendum þér verðtilboð. Engin skuldbinding.
Fáðu verðtilboð