Sleppa á efni

Hálkuvörn – hvenær þarf að salta?

Uppfært

Hálka myndast oftast þegar hitinn sveiflast um frostmark, til dæmis þegar bleyta frýs yfir nóttina eða rignir á frosið yfirborð. Þá þarf að salta, líka þá daga sem enginn snjór er til að moka. Saltbíllinn okkar fer um staði á listanum sem eru með hálkuvörn þegar hálkar, dag sem nótt.

Hvenær myndast hálka?

Algengustu aðstæðurnar eru þessar:

  • Hiti um frostmark og bleyta á yfirborði
  • Heiðskír nótt eftir blautan dag
  • Rigning eða slydda sem fellur á frosið plan
  • Snjór sem þjappast undir bílum og verður að klaka
  • Hláka á daginn og frost á nóttunni

Salt eftir mokstur

Eftir mokstur situr oft þunnt lag af snjó eða bleytu eftir á planinu. Ef frystir á eftir verður það að hálku. Þess vegna velja margir mokstur og salt saman.

Hvað gerir saltið?

Salt lækkar frostmark vatnsins svo bleytan frýs síður. Það virkar best þegar hitinn er nálægt frostmarki.

Hvenær förum við af stað?

Saltbíllinn fer um þegar hálkar, dag sem nótt, og staðir á listanum með hálkuvörn eru á leiðunum á hverri vakt. Við fylgjum veðurspá og reynum að koma á undan hálkunni, en stundum kemur hún óvænt.

Bara salt, bara mokstur eða hvort tveggja

Þú velur. Sumar nætur er bara hálka og þá fer saltbíllinn einn. Aðrar nætur þarf að moka og salta á eftir.

Það sem þú getur gert

Nokkur atriði draga úr hálku á þínu plani:

  • Haltu niðurföllum opnum svo vatn safnist ekki á planinu
  • Láttu okkur vita af stöðum þar sem vatn safnast og frýs, t.d. undir þakrennum
  • Láttu okkur vita af svæðum sem á ekki að salta, t.d. við gróður — við skráum það fyrir staðinn

Algengar spurningar

Spurt og svarað

Getið þið bara saltað, án moksturs?

Já. Þú velur hvort þú vilt mokstur, salt eða hvort tveggja.

Fer salt illa með gróður?

Salt getur farið illa með gróður meðfram plani. Láttu okkur vita af svæðum sem á ekki að salta og við skráum það fyrir staðinn.

Hvað kostar hálkuvörn?

Greitt er fyrir hvert skipti sem við söltum. Verðið fer eftir stærð staðarins og við förum yfir það með þér áður en við byrjum.

Viltu vita meira?

Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband. Engin skuldbinding.